|
|
17.12.2008 04:42:00 / Gummi
jæja nú er komið að því, eftir rúman sólarhring fer ég í loftið frá Long Beach airport, lendi í New York eftir 5 tíma flug þarf svo að bíða þar í 8 klukkutíma, lendi svo á föstudags morgun kl 6. Ég get ekki beðið. Mig hlakkar svo til að hitta alla heima, ég er komin með smá ógeð á LA í bili allavega.
»
01.12.2008 03:10:20 / Gummi
Svör við spurningum
1. True Romance
2. Shawshank Redemption. 3.Stuttur Frakki 4.Léon 5.Pulp Fiction 6. Se7en 7. Holy Grail 8.Airplane 9. Silence of The Lambs 10.Fargo 11. American History x 12. Forest Gump 13. Requiem for a Dream 14. Reservoir Dogs 15. Gladiator 16. The big Lebowski 17. Finding Nemo 18. Groundhog Day 19. Three Amigos 20. Top Secret
Svona var staðan á þeim sem sendu inn. 1. Mummi 18 og hálft 2. Ástþór 14 3. Hildur 11 4. Gísli Björn 10 5. Boggi 10 6. Ingi þór 10 Svo voru nokkrir sem sendu ekki inn, kvörtuðu bara yfir því að þetta væri of erfitt, þeir fá allir NÚLL og eru bara hvattir til að gera sýna eigin getraun. Svo er ég að spá í að gefa Zindra mínusstig fyrir að hafa ætlað að senda inn og vinna en það var víst of erfit fyrir hann, hann kann örugglega ekki að senda email, kannski sendi hann með íslandspósti. En Mummi frændi á inni hjá mér bjór.
»
23.11.2008 11:53:17 / Gummi
Þá er komið að smá kvikmyndagetraun, hérna fyrir neðan eru setningar í frægum bíómyndum, mis frægum reyndar. En ef að þið vitið svörin þá megiði senda mér á gudlud@hotmail.com ekki skrifa í skoðana kerfið því að þá sjá allir svörin í verlaun er titillinn Kvikmyndagetraunameistari Gumma Bloggs og heill bjór. OG það er bannað að svindla og Googla þetta ok.NjótiðÚr hvaða myndum koma þessar setningar? 1. I mean look at her. It looks like she fell off
the ugly tree and hit every branch on the way down.2. Get busy living, or get busy dying.3. Every morning they wake me up and cry for more Lýsi,
Lýsi, Lýsi, Lýsi they scream.4. This is from... Mathilda.5. That's a pretty fucking good milkshake. I don't
know if it's worth five dollars but it’s pretty fucking good.6. It seems that envy is my sin.7. Well, she turned me into a newt! A newt? I got better. 8. You ever seen a grown man naked?9. I do wish we could chat longer, but... I'm
having an old friend for dinner. Bye.10. Say, Lou, didya hear the one about the guy who
couldn't afford personalized plates, so he went and changed his name to
J3L2404?11. Put your mouth on the curb!12. When I got tired, I slept. When I got hungry, I
ate. When I had to go, you know, I went.
13. We got a winner, I said we got a winner, we got a winner, juice for Sara.
14. Let me tel you what 'Like a Virgin' is al about. It's about a girl who digs big dick. The entire song. It's a metaphor for big dicks.
15. Father to a murdered son, husband to a mudered wife. And I will have my vangeance, in this life or the next.
16. Nobody fucks with the Jesus.
17.Okay, don't make any sudden moves. Hop inside my
mouth... if you want to live.
18.Ned... Ryerson. ''Needlenose Ned''? ''Ned the Head''? C'mon, buddy. Case Western High. I did the whistling belly-button trick at the high scool talent show? Bing. Ned Ryerson, got the shinles real bad senior year, almost did't graduate? Bing, again. Ned Ryerson, I dated your sister Mary Pat a couple of times until you told me not to anymore?
19. Oh great. You killed the invisible Swordsman!
20. I know a little German. He's sitting over there.
Og muniði svo að senda svörin á gudlud@hotmail.com, Svo verður sigurvegarinn og svörin birt sunnudaginn 30. nóvember.
marttagtype name="place" namespaceuri="urn chemas-microsoft-com ffice marttags">marttagtype>
»
06.11.2008 01:18:38 / Gummi
»
01.11.2008 02:52:31 / Gummi
Besta stuttmynd ársins Hnappurinn. Sjá hér
»
29.10.2008 04:40:44 / Gummi
hann Magnús hann er þrettán í dag. (gær á íslenskum tíma) Skrítið hvað tíminn líður hratt, Magnús Almar að verða fullorðinn og ég missi að öllu saman.
Enn að fréttum hérna úti er það að frétta að ég fór í dag að sækja um social security number í dag, sem er einhverskonar kennitala hérna úti og allir þurfa að hafa til að vinna. Ég get sótt hana á morgun, og það kostaði ekki neitt, ég átti alveg von á að þurfa að punga út allavega 2 þúsund kalli í þetta en nei nei alveg frítt. Þannig að nú getur ekkert stoppað mig lengur, nema að enginn vilji ráða mig í vinnu, en ég held að fólk sé nú ekki það vitlaust.
Við erum búinn að segja upp íbúðinni og förum úr henni í endaðan nóvember, Andrea er búinn að fynna sér hús sem hún ætlar að leigja með 3 öðrum stelpum. Nú þarf ég bara að fynna mér einhvern stað til að vera á, er eginlega ekki að nenna því, langar mest bara að fara að koma mér heim. Er ekkert að stressa mig á þessu.
Svo var ég að leika í tveimur stuttmyndum í síðustu viku og er feginn að það sé búið því að þetta voru langar tökur og mikið á nóttini og yfirleit ílla skipulagt. En ég á von á að þetta líti vel út. Frumsýning 12. des á 16 stuttmyndum og ég verð í 4 eða 5 myndum.
»
11.10.2008 07:24:17 / Gummi
Jæja það er aldeilis sem mikið er að gerast þessa dagana. Ísland mátti greinilega ekki við því að missa Helga og Steina úr landi í nokkra daga, Það gæti reyndar haft hafa áhrif á krónuna þegar Steini fór að gambla í Vegas. En að öllu gríni slepptu þá er ég búinn að skemmta mér konunglega síðustu vikur og við náðum að gera annsi mikið á nokkrum dögum. Við fórum í sund nokkrum sinnum, fórum á ströndinna, í Universal Studios þrisvar sinnum, skoðuðum hús fræga fólksinns í Beverly Hills, fórum til Vegas, Sáum Cirque du soleil og Criss Angel, fórum í Jay Leno og fórum í Six Flags ( sem er risa rúsibanagarður). Fyrir utan allan bjórinn sem við drukkum. Núna er íbúðin frekar tómleg, enda fer nú ekki lítið fyrir þessum drengjum, og ég sakna þeirra. Ég sakna reyndar annsi margra frá Íslandi, En næsta skref er bara að fara að vinna sér inn soldið af dollurum og fá eitthvað að gera. Ég er núna byrjaður að æfa fyrir eina stuttmynd sem við byrjum að skjóta 20 okt, svo get ég sótt um bandaríska kennitölu 28 okt ( táknrænt þá á Magnús afmæli). Svo get ég byrjað að vinna.
Þá byrjar gamanið bara aftur. Allir að muna að vera bjartsýn þá gengur allt betur.
»
24.09.2008 22:59:01 / Gummi
Það er ekkert smá hvað ég er vinsæll í dag, það eru komnar 232 heimsóknir á síðunna mína í dag. Kannski er ég bara orðinn frægur án þess að vita af því, þið meigið nú alveg kvitta samt þegar þið komið í heimsókn. Annars á ég von á bestu heimsókninni annað kvöld þegar Helgi og Steini koma, Og þá verður gaman.
»
22.09.2008 21:26:20 / Gummi
Ég er orðinn svo spenntur að fá vini mína í heimsókn ég get ekki beðið.
Ég er orðinn soldið leiður á að hanga og gera lítið sem ekkert, dagurinn minn er einhvern veginn svona Vakna- fara í tölvunna- Borða- fara í sturtu- fara aftur í tölvunna Reyndar fer ég nú stundum út í göngu eða les úti í sólinni eða bíó eða geri það sem þarf að gera á heimilinu þrífa ,setja í þvottavél osfv. Spennandi ha.
En já það voru mikil viðbrigði að klára skólann og hafa svo ekkert að gera og ég var orðinn frekar dapur og einmanna, þegar allt í einu allt fór að gerast. Einn vinur minn hann Chris úr skólanum hennar Andreu kom og vantaði gistingu í nokkra daga, já nú er ég allavega kominn með félagsskap, svo er ég kominn með umboðsmann sem ætlar að reyna að koma mér í prufur þegar ég get loksins farið að vinna. Já og ég fékk meiri pening en ég átti von á frá LÍN sem á eftir að hjálpa mér mikið.
Nú er bara að fara að undirbúa komu vina minna frá Íslandi, því að það verður að sýna þeim allt sem hægt er að sjá á aðeins 10 dögum, Búið að plana ferð til Vegas og ferð í Universal studios og Six Flags (rúsibanagarður) svo á að kíkja á Jay Leno og eða Jimmy Kimmel, og fleira og fleira og fleira.
»
11.09.2008 22:40:34 / Gummi
Halló, hérna eru tvö videó sem ég var að setja á youtube. Fyrst Kaffi og með því eða Coffee and Cake Svo svona actors reel, sem er svona kyningarmyndband um mig.
»
06.09.2008 23:06:46 / Gummi
Jæja þá er maður útskrifaður og við tekur barningur við að gera allt sjálfur. Ég er búinn að fara í eitt viðtal við umboðsman og fer í annað á mánudag, en þó að ég væri komin með umboðsmann þá má ég ekkert vinna fyrr en ég fæ vinnuleyfi, en ég fæ það ekki fyrr en í endaðan oktober. Já það er ekkert verið að auðvelda manni hlutina hérna. Þangað til verð ég bara að bíða og reyna að koma mér í einhver sambönd öðruvísi, ég má auðvitað vinna án þess að fá laun. Kannski ég geri það, fynni mér einhverjar Student´s film´s og leik fyrir mat. Ég er líka búinn að fá einkunnirnar og ég fékk A í öllu en það er einmitt hæsta einkun.
Annars eru bara 19 dagar þangað til Helgi og Steini koma í heimsókn, og þá verður sko gaman. Ætlum að gera alveg fullt skemmtilegt. (ef að peningar leyfa).
Annars af öðrum sorglegri fréttum, þá var Amma mín jörðuð í dag og mér finnst ekki auðvelt að geta ekki verið á staðnum. En hún var orðinn 97 ára blessuninn, elst í Vestmannaeyjum. Hvíldu í friði elsku Amma mín.
»
27.08.2008 07:11:09 / Gummi
Jæja þá er bara komið að því, ídag Miðvikudag verður loka Showcase ið okkar, og þá fáum við tækifæri á að ná okkur í umboðsmann eða framhvæmdarstjóra. Svo á föstudag sýnum við Loka myndinna okkar í Warner Bros studios, og eftir það verðum við útskrifuð.
Já og svo var ég að frétta að Vinir mínir þeir Steini, Helgi Róbert og Tolli ætla að fljúga til mín í endaðann september, og ætla að vera í tvær vikur. Það verður ógeðslega gaman . Ég er orðinn svo spenntur að hitta þá en þarf að bíða í ca mánuð í viðbót. Þarf að fara að skipurleggja hvað við ætlum að gera.
En fyrst að frumsýna og útskrifast.
»
18.08.2008 01:29:19 / Gummi
 Föstudaginn 22 ágúst klukkan 18:00 og þriðjudaginn 26 ágúst kl 23:00 verður stuttmyndin Hnappurinn sem ég lék í sýnd á kvikmyndahátíðinni Short and Docs. Sjá dagskrá hérna. Ekki fyrir viðhvæma sem móðgast ef að þeir sjá á mér rassinn. Ath. Sýnt er í Austurbæ og miðasala hefst í dag Fimmtudag. og það kostar 600 kr Sjá hérna
»
12.08.2008 07:19:00 / Gummi
Já skólinn er alveg að verða búinn, og ég á eftir að láta taka af mér headshot (brjóstmynd) leika í tveimur stuttmyndum, Klippa Kaffi og með því og æfa atriðið fyrir finar show case. Og auðvitað allt hitt sem ég þarf að gera fyrir skólann. En já tökur gengu nokkuð vel á Coffee and cake og þá á bara eftir að klippa, sem getur tekið soldinn tíma, sérstaklega þegar maður er ekkert rosalega klár í því. En þetta á eftir að smella saman einvernveginn. Vona ég.  Bið að heilsa heim á klakann. Læt fylgja með eitt af mínum uppáhaldslögum, Hljómsveitin Ljube með lagið Kon.
»
16.07.2008 20:43:58 / Gummi
Klikkið hér Farið á myndina á kortinu og hreifið hana með músinni, húsið mitt er með bláum flöggum utan á. Svalirnar mínar eru aðrar til hægri frá útidyrum á annari hæð. Svo getið þið hreift myndina allann hringinn og skoðað hverfið mitt. Sniðugt ha.
»
Síður: 1 2 3 ... 12
|
Heimsóknir
Í dag: 2 Alls: 58856
|